Kynning á lista yfir nytjaplöntur 1995

HöfundurÚtgefandiÚtgáfuárÚtgáfustaður
Áslaug HelgadóttirBÍ, RALA1995Reykjavík
RitÁrgangurTölublaðBls.
Ráðunautafundur1995184-185

Nýkomið er út lítið hefti með lista yfir þá stofna sem mælt er með í landbúnaði, matjurtarækt, í garðflatir og til landgræðslu 1995. Heftið nefnist NYTJAPLÖNTUR Á ÍSLANDI 1995 og eru útgefendur Búnaðarfélag Íslands, Bændaskólinn á Hvanneyri, Garðyrkjuskóli ríkisins og Rannsóknastofnun landbúnaðarins.

Á undanförnum áratugum hafa fjölmargar tegundir og stofnar ýmissa nytjajurta verið prófaðir í tilraunum og leiðbeint var um notkun þeirra eftir föngum. Tilraunamenn og ráðunautar skrifuðu greinar og gerðu grein fyrir þeim stofnum sem voru á markaði og gagnast gætu í ræktun hérlendis. Mikil breyting varð á þegar sett var reglugerð um innflutning og verslun með sáðvöru 26. mars 1971. Í 3. gr. segir: „Á vegum jarðræktardeildar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins skal árlega birta skrá yfir þær nytjajurtir, tegundir, afbrigði og stofna, sem mælt er með, að notaðir séu til ræktunar í landinu“. Í kjölfarið var farið að gefa út fylgirit með Frey sem nefndist FRÆEFTIRLIT, Leiðbeiningar um innflutning fræs, og kom það út sex sinnum árin 1972-1978. Listi þessi takmarkaðist við gras- og grænfóðurtegundir. Auk upptalningar á stofnum var þar einnig að finna ýmsar athugasemdir og leiðbeiningar um notkun hinna ýmsu tegunda og stofna.

Árið 1978 voru sett ný lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Samkvæmt þeim lögum og reglugerð nr. 256 frá 1981 var skylt að gefa út lista árlega yfir þá stofna sem heimilt væri að selja án sérstaks leyfis frá eftirlitsdeild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, síðar Aðfangaeftirlitinu. Síðan hefur verið gefinn út svokallaður SÁÐVÖRULISTI árlega. Þar eru, án athugasemda, taldir upp þeir stofnar fóðurjurta og byggs til kornþroska sem heimilt er að flytja til landsins. Aldrei hafa verið gefnir út neinir samsvarandi listar fyrir kartöflur, grænmeti eða berjarunna.

Síðustu ár hefur þörf fyrir flatargrös aukist verulega. Golfvöllum hefur fjölgað um allt land og auk þess er mikið um að útbúnir séu grasvellir fyrir knattspyrnu. Þessum málaflokki hefur lítið verið sinnt fram að þessu og stofnaval á sáðvörulista hefur verið takmarkað. Ekki hefur verið tekinn saman listi um þær tegundir og stofna sem eru fáanlegir og henta til uppgræðslu og til sáningar í vegkanta.

Ástæða þótti því til að gefa út sameiginlegan lista yfir fóðurjurtir, matjurtir og tegundir sem henta til uppgræðslu og í garðflatir. Eru þar bæði erlendir stofnar, sem flytja þarf inn, og íslenskir stofnar sem hér eru í frærækt. Takmarkaðar leiðbeiningar eru gefnar þar sem það á við. Stefnt er að því að NYTJAPLÖNTUR Á ÍSLANDI komi út árlega.