Áhrif lýsingartíma og frævunar á vöxt og uppskeru tómata við raflýsingu

HöfundurÚtgefandiÚtgáfuárÚtgáfustaður
Björn Gunnlaugsson, Sveinn AðalsteinssonGarðyrkjumiðstöðin Reykjum2003Reykjum, Ölfusi
RitÁrgangurTölublaðBls.
Garðyrkjufréttir2108

0210.pdf

Ræktaðir voru tómatar ‘Espero’ við raflýsingu í tveimur 60 m2 klefum. Lýst var með háþrýstum natríumlömpum, 170 W/m2 uppsett afl sem gaf um 16.000 lux. Lýsingartími var annars vegar frá kl. 04-22 (meðallýsingarkostnaður 85 kr/m2/viku) og hins vegar frá 23-17 (meðallýsingarkostnaður 76 kr/m2/viku). Síðari lýsingartíminn var styttur um 2 tíma (01-17) þann 25. febrúar og um 1 tíma (02-17) þann 13. apríl til þess að tryggja að plönturnar fengju nægilega langa nótt. Þá var jafnframt farið að láta inngeislun stýra því hvort lýst væri á daginn eður ei. Færi geislun yfir 40 klux (320 W/m2) slökknuðu ljósin sjálfkrafa, en kviknuðu á ný ef geislun fór undir 30 klux (240 W/m2). Frá 5. maí var beitt sömu lýsingaráætlun í báðum klefum, þ.e.a.s. ljósin voru ávallt slökkt á nóttinni (frá kl. 22-04) en á daginn var lýsingu stýrt eftir inngeislun eins og sem lýst er hér að ofan. Frævað var annars vegar með handfrævun og hunangsflugum og hins vegar eingöngu með hunangsflugum. Sáð var í steinull 18. nóvember 2002 og plantað 28. desember. Fyrsta uppskera kom þann 18. febrúar og tínt var af plöntunum þar til í lok júlí (23 vikur). Mest söluhæf uppskera, 42,4 kg/m2 fékkst þegar lýst var frá 04-22 og frævað með hunangsflugum eingöngu. Uppskera söluvöru var að jafnaði um 4,6 kg/m2 lægri ef beitt var lýsingu frá 23-17. Vikuleg uppskera söluvöru var á bilinu 1,62-1.84 kg/m2. Ekki kom fram neinn verulegur munur á uppskeru eftir því hvorri aðferðinni var beitt við frævun. Kostnaður við raflýsingu á hvert kg söluvöru var sá sami við báða lýsingartímana eða um 50 kr/kg, þannig að aukinn kostnaður samfara meiri lýsingu og hærri raforkutaxta við lýsingartíma frá kl. 04-22 skilaði sér í aukinni uppskeru. Niðurstöður tilraunarinnar benda þvi til þess að ekki sé nauðsynlegt að sveigja lýsingartíma fyrir tómata að ódýrari töxtum fyrir raforku til að auka hagkvæmni ræktunarinnar.