Lífrænir áburðargjafar í gúrkuræktun

HöfundurÚtgefandiÚtgáfuárÚtgáfustaður
Björn Gunnlaugsson, Gunnþór Kr. GuðfinnssonGarðyrkjumiðstöðin Reykjum2004Reykir, Ölfusi
RitÁrgangurTölublaðBls.
Garðyrkjufréttir21411

0214.pdf

Ræktaðar voru gúrkur í 216 m2 ræktunarklefa. Í fyrri útplöntun var ræktað yrkið ‘Mustang’ en ‘Ventura’ í hinni síðari. Útbúin voru upphækkuð beð, 8,00 x 1,00 x 0,30 m og sett í þau moldarblanda úr sveppamassa, íslenskri mómold og vikri. Gefinn var viðbótaráburður með sveppamassa, fiskmjöli eða fiskmeltu á ræktunartímanum. Sáð var í Jiffy-9 mómoldartöflur og pottað í 13 cm netpotta. Á forræktunartímanum voru plönturnar vökvaðar einu sinni með lausn af Trianum P (Trichoderma harzianum) til að fyrirbyggja rótarsjúkdóma.
Fyrri sáningin (‘Mustang’) fór fram 20. mars 2003, pottað var 27. mars og plantað í beð 17. apríl. Fyrsta uppskera kom þann 12. maí og tínt var af plöntunum þar til í lok júní, samtals 8 vikur. Mest söluhæf uppskera, 20,1 kg/m2 fékkst þegar borið var á með fiskmjöli, en minnst ef viðbótaráburður var gefinn með fiskmeltu, 15,0 kg/m2.
Síðari sáningin (‘Ventura’) átti sér stað 4. júni og plantað var í beð þann 2. júlí. Fyrsta uppskeran kom 25. júlí og uppskorið var til 27. október, samtals 13 vikur. Mest uppskera í seinni útplöntun fékkst þegar gefinn var viðbótaráburður með sveppamassa, 19,9 kg/m2, en minnst ef gefin var fiskmelta, 15,3 kg/m2. Heildaruppskera á ræktunartímabilinu varð svipuð hvort sem gefinn var sveppamassi (36,9 kg/m2) eða fiskmjöl (35,6 kg/m2) sem viðbótaráburður. Nokkuð lakari heildaruppskera fékkst þegar gefin var fiskmelta sem viðbótaráburður eða um 30,3 kg/m2.