Vaxtarrými og millilýsing við ræktun á papriku. Tilraun árið 2004

HöfundurÚtgefandiÚtgáfuárÚtgáfustaður
Garðar R. ÁrnasonGarðyrkjumiðstöðin Reykjum2004Reykir, Ölfusi
RitÁrgangurTölublaðBls.
Garðyrkjufréttir20042178

0217.pdf

Árið 2004 fóru fram tilraunir á Garðyrkjuskóla ríkisins með vaxtarrými og millilýsingu fyrir papriku. Paprikuyrkinu ’Mandy’ (rautt) var sáð í steinull 9. janúar og pottað í steinullarkubba 27. janúar. Plönturnar voru látnar vaxa upp á tveimur sprotum. Ræktunin fór fram í vikri (1-8 mm), sem hafður var í 11 lítra Bato-bökkum. Plantað var út 2. og 3. mars, með 4,8, 5,4, 5,9, 6,5 og 7,0 sprotum á fermetra, með og án millilýsingar (67 W á beðfermetra, 50 W á brúttófermetra). Hver tilraunaliður var með tvær endurtekningar. Fyrsta uppskera kom 29. apríl og uppskorið var til 4. nóvember. Á ræktunartímanum var leitast við að halda 21-22°C hita að degi, 17-18°C að nóttu og loftað við 24°C. Gefinn var koltvísýringur og leitast við að halda 500 ppm CO2 þegar gluggar voru lokaðir og 340 ppm CO2 þegar loftað var. Marktæk aukning í söluhæfri uppskeru kom fram þegar fjöldi sprota var aukinn úr 4,8 upp í 5,9 sprota á fermetra, en við þéttara vaxtarrými tók að draga úr uppskerunni á ný. Millilýsingin hafði einkum jákvæð áhrif á uppskeruna í byrjun og lok uppskerutímans og skilaði að meðaltali 20% uppskeruauka. Uppskeruaukinn stafaði af fleiri uppskeruhæfum aldinum með millilýsingunni, því plönturnar héldu betur litlu aldinvísunum.