Lofthiti og grasvöxtur

HöfundurÚtgefandiÚtgáfuárÚtgáfustaður
Hólmgeir Björnsson, Áslaug HelgadóttirBÍ, RALA1987Reykjavík
RitÁrgangurTölublaðBls.
Ráðunautafundur198713-23

1987-HB&AH.pdf
Sjá greinina í heild í pdf-skjalinu hér að ofan

I. Útreikningar á sambandi hita og heyfengs

Athuganir Páls Bergþórssonar og fleiri á heyfeng landsmanna hafa fyrir löngu leitt í ljós skýrt samband milli heyfengs og lofthita. Heimildir um heyfeng eru á ýmsan hátt
ótraustar svo að óhjákvæmilegt er að leiðrétta þær með ýmsum hætti áður en unnt er aó draga af þeim ályktanir. Því er.ekki óeðlilegt að menn hafi tekið niðurstöðunum með nokkurri varúð. Þess vegna hefur lengi verið áhugi á að reikna sambandið milli hita og heyfengs aó nýju með því aó vinna úr óháðum gögnum. Uppskerutölur úr langtímatilraunum tilraunastöðvanna á Akureyri, Reykhólum, Sámsstöðum og Skriðuklaustri henta mjög vel í því skyni.

Markmið þessa þáttar verkefnisins var þríþætt. f fyrsta lagi aó fá sem best mat á það hvernig grasvöxtur, og þar með fóðuröflun, breytist með veðurfari. Í öðru lagi aó leita skýringa á hinu fundna samhengi, og loks að reyna að segja fyrir um áhrif aukins eða minnkandi grasvaxtar á búskap.