Vaxtarlýsing papriku að sumri

HöfundurÚtgefandiÚtgáfuárÚtgáfustaður
Garðar R. ÁrnasonGarðyrkumiðstöðin Reykjum2006Reykir, Ölfusi
RitÁrgangurTölublaðBls.
Garðyrkjufréttir2208

0220.pdf

Árið 2005 fóru fram tilraunir á Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum með vaxtarlýsingu papriku á hefðbundnum, ólýstum ræktunartíma hér á landi. Paprikuyrkinu ´Mandy´ (rautt) var sáð í steinull 10. janúar og pottað í steinullarkubba 23. janúar. Plönturnar voru látnar vaxa upp á tveimur sprotum. Ræktunin fór fram í vikri (1-8 mm), sem hafður var í 11 lítra Bato-bökkum. Plantað var út 24. febrúar, með 5,4 og 5,9 sprotum á fermetra. Plönturnar voru ýmist lýstar með topp- eða millilýsingu og til samanburðar voru ólýstar plöntur. Millilýsingin (84 W á brúttó fermetra) hófst degi eftir eftir útplöntun og topplýsingin (81 W á brúttó fermetra) sex dögum síðar. Uppskera hófst 14. apríl og henni lauk 30. nóvember. Á ræktunartímanum var leitast við að halda 21-22°C hita að degi, 17-18°C að nóttu og loftað við 24°C. Gefinn var koltvísýringur og leitast við að halda 500 ppm CO2 þegar gluggar voru lokaðir og 340 ppm þegar loftað var. Þegar notast var við hjálparlýsingu var uppskeran nánast sú sama hvort heldur var haldið 5,4 eða 5,9 sprotum á fermetra, en ólýstar plöntur voru bara prófaðar með 5,9 sprotum á fermetra. Hjálparlýsingin skilaði marktækum uppskeruauka, með 5,9 sprotum á fermetra var söluhæf uppskera ólýstra plantna 16,7 kg á fermetra og jók millilýsingin uppskeruna um 32% (22,1 kg/m2) og topplýsingin um 50% (25,0 kg/m2).