Millilýsing í vetrarræktun tómata
 |
| Höfundur | Útgefandi | Útgáfuár | Útgáfustaður |
| Björn Gunnlaugsson, Sveinn Aðalsteinsson | Garðyrkjumiðstöðin Reykjum | 2004 | Reykir, Ölfusi |
 |  |  |  |
| Rit | Árgangur | Tölublað | Bls. |
| Garðyrkjufréttir | | 216 | 7 |
 |  |  |  |
 |  |  |  |

Ræktaðir voru tómatar ‘Espero’ og ‘Geysir’ við raflýsingu í þremur 60 m2 klefum. Beitt var þrenns konar tilhögun við uppsetningu lýsingar; hefðbundinni topplýsingu þar sem 600W háþrýstir natríumlampar voru hengdir upp í 20 cm hæð frá vír; 22% millilýsingu þar sem annars vegar voru notaðir 600W lampar sem hengdir voru upp á sama hátt og við topplýsingu og hins vegar 250W háþrýstir natríumlampar sem hengdir voru upp inni á milli plönturaðanna í tvöföldu beði og loks 45% millilýsingu þar sem notaður voru 400W háþrýstir natríumlampar til topplýsingar og 250W lampar til millilýsingar. Uppsett afl til lýsingar var 238 W/m2 í öllum tilfellum og lýst var í 18 tíma, frá kl. 04-22. Inngeislun var látin stýra því hvort lýst væri á daginn eður ei, færi geislun yfir 40 klux (320 W/m2) slökknuðu ljósin sjálfkrafa, en kviknuðu á ný ef geislun fór undir 30 klux (240 W/m2). Sáð var í steinull 20. ágúst 2003, plantað 22. og 24. september og fyrsta uppskeran kom þann 14. nóvember. Tínt var af plöntunum þar til 24. mars (í 19 vikur). Lýsingartilhögun hafði ekki áhrif á uppskeru hjá yrkinu ‘Geysi’ en hún var að meðaltali 38,48 kg/m2 eða rúmlega 2 kg/m2 og uppskeruviku. Uppskera ‘Espero’ var að jafnaði um 4 kg/m2 minni en hjá ‘Geysi’ og þar hafði lýsingartilhögun áhrif á uppskeru, en hún varð mest 35,95 kg/m2 þegar beitt var 45% millilýsingu. Uppskeran varð um 1,5 kg/m2 minni við 22% millilýsingu og um 3 kg/m2 minni við topplýsingu. Ástæður fyrir uppskerumun liggja aðallega í því að hjá ‘Geysi’ mynduðust að jafnaði fleiri aldin á hverjum klasa og þyngd aldina varð ívið meiri. Heildarfjöldi klasa sem myndaðist á hverri plöntu var sá sami. Niðurstöður tilraunarinnar benda til þess að yrki bregðist misjafnlega við millilýsingu, þannig getur millilýsing hentað sumum yrkjum, öðrum ekki. Líklegt má telja að framleiðendur kjósi fremur að beita topplýsingu við vetrarræktun tómata þar sem hún er einfaldari og ódýrari í uppsetningu og velji þá yrki sem henta fyrir slíka lýsingartilhögun. |