Rótarhálsskemmdir í papriku "Fílsfótur"
 |
| Höfundur | Útgefandi | Útgáfuár | Útgáfustaður |
| Garðar R. Árnason | Garðyrkjumiðstöðin Reykjum | 2004 | Reykir, Ölfusi |
 |  |  |  |
| Rit | Árgangur | Tölublað | Bls. |
| Garðyrkjufréttir | | 213 | 3 |
 |  |  |  |
 |  |  |  |

Af og til á undanförnum árum hefur, bæði hér á landi og víða erlendis, borið á skemmdum í neðsta hluta stönguls paprikuplantna, frá rótarhálsi og upp að kímblöðum, þegar ræktunin fer fram í óvirkum rótarbeði. Þetta svæði stöngulsins bólgnar út og verður brúnt á litinn, auk þess sem ílangar sprungur taka að myndast í skemmdinni. Eftir því sem kvillinn ágerist er auðvelt að skafa ysta lagið af stönglinum og sjúkdómsvaldandi sveppir geta lagst í skemmdirnar og valdið roti, sem getur í slæmum tilfellum náð inn í æðastrengi stöngulsins og valdið alvarlegri visnun í plöntunum. Algengt er að talsvert beri á svarðmýi umhverfis sýktar plöntur, en vitað er að svarðmý getur borið smitefni skaðlegra sveppa. Þessi kvilli gengur víða erlendis undir enska heitinu "elephant´s foot", með skírskotun til útlits söngulsins og gæti því kallast "fílsfótur" á íslensku. |