Forathugun með ræktun kúrbíts
 |
| Höfundur | Útgefandi | Útgáfuár | Útgáfustaður |
| Garðar R. Árnason | Garðyrkjumiðstöðin Reykjum | 2004 | Reykir, Ölfusi |
 |  |  |  |
| Rit | Árgangur | Tölublað | Bls. |
| Garðyrkjufréttir | | 218 | 7 |
 |  |  |  |
 |  |  |  |

Sumarið 2004 fóru fram forathuganir á Garðyrkjuskóla ríkisins með ræktun kúrbíts (Cucurbita pepo). Ræktunin fór fram í tveimur hollum með yrkin ´Bengal´ og ´Cora´. Fyrra hollinu var sáð í steinullarkubba 16.2. og því seinna 17.5. Ræktunin fór fram í vikri (1-8 mm), sem hafður var í 11 lítra Bato-bökkum. Plantað var bakkana 7.3. í fyrra holli og 28.5. í seinna hollinu og plöntunum komið fyrir í ræktunarklefanum annars vegar 12.3. og hins vegar 9.6. Hvor tilraunaliðurinn var með tvær endurtekningar. Uppskeran í fyrra hollinu hófst 29.3. og stóð yfir í 10,5 vikur, til og með 8.6. Í seinna hollinu hófst uppskeran 23.6. og stóð yfir í 11 vikur, til og með 6.9. Á ræktunartímanum var leitast við að halda (18-)-20°C hita að degi og 16°C að nóttu og loftað við 24°C. Gefinn var koltvísýringur og leitast við að halda 500 ppm CO2 þegar gluggar voru lokaðir og 340 ppm CO2 þegar loftað var. Rot í aldinum og stönglum plantna bitnaði talsvert á uppskerunni, einkum hjá ´Bengal´. Fyrir bæði ræktunarhollin skilaði ´Bengal´ 11,9 kg/m2 af söluhæfri uppskeru og ´Cora´ 15,2 kg/m2. Meðal heimskilaverð var 189 kr/kg. |