Ræktun "nýrra" salattegunda: batavíasalat og lausblaða íssalat
 |
| Höfundur | Útgefandi | Útgáfuár | Útgáfustaður |
| Garðar R. Árnason | Garðyrkjumiðstöðin Reykjum | 2004 | Reykir, Ölfusi |
 |  |  |  |
| Rit | Árgangur | Tölublað | Bls. |
| Garðyrkjufréttir | | 215 | 9 |
 |  |  |  |
 |  |  |  |

Árin 2003 og 2004 fóru fram tilraunir á Garðyrkjuskóla ríkisins með ræktun batavíasalats og lausblaða íssalats. Prófuð voru fjögur yrki af batavíasalati (´Sparta´, ´Cherokee´, ´Angie´ og ´Gainor´) og eitt yrki lausblaða íssalats (´Frillice´). Ræktunin fór fram í hringrásarlausn, frá byrjun september 2003 til aprílloka 2004, við 18°C daghita og 15°C næturhita og 180 W/m2 vaxtarlýsingu (uppsett afl). Vaxtarrými plantnanna var breytilegt eftir tilraunaliðum, sem og lengd ræktunarinnar. Plönturnar voru forræktaðar í 3-4 vikur og ræktunin í rennunum var 3-5 vikur. Ýmist voru ein eða tvær plöntur saman í potti. Plönturnar voru tiltölulega hraðvaxta, náðu uppskeruhæfum þroska á um sjö vikna sprettutíma (frá sáningu og að uppskeru). Salatið þótti búa yfir mikilvægum salateiginleikum, var bragðgott, stökkt og með gott geymsluþol. Hins vegar reyndust plönturnar ákaflega viðkvæmar fyrir ytri blaðjaðrasviðnun. |