Vaxtarrými og tilhögun forræktunar við ræktun á papriku. Tilraun árið 2003
 |
| Höfundur | Útgefandi | Útgáfuár | Útgáfustaður |
| Garðar R. Árnason, Björn Gunnlaugsson, Sveinn Aðalsteinsson | Garðyrkjumiðstöðin á Reykjum | 2004 | Reykir, Ölfusi |
 |  |  |  |
| Rit | Árgangur | Tölublað | Bls. |
| Garðyrkjufréttir | | 212 | 6 |
 |  |  |  |
 |  |  |  |

Árið 2003 fóru fram tilraunir á Garðyrkjuskóla ríkisins með vaxtarrými, forræktun og útplöntun fyrir papriku. Tveimur paprikuafbrigðum, ´Mandy´(rautt) og ´Bossanova´(gult), var sáð í steinull 16. janúar og ýmist pottað í steinullarkubba eða plantað beint í ræktunarbakkana þann 1. febrúar. Plöntur sem fengu hefðbundna forræktun með pottun voru látnar vaxa upp á tveimur sprotum, en þær sem var plantað beint í bakkana voru látnar vaxa upp á einum sprota. Ræktunin fór fram í vikri (1-8 mm), sem hafður var í 11 lítra Bato-bökkum. Plantað var út 6. mars og ýmist hafðir 5 eða 6 sprotar á fermetra. Fyrsta uppskera kom 22. maí og uppskorið var til 13. nóvember. Á ræktunartímanum var leitast við að halda 21-22°C hita að degi, 17-18°C að nóttu og loftað við 24°C. Gefinn var koltvísýringur og leitast við að halda 500 ppm CO2 þegar gluggar voru lokaðir og 340 ppm CO2 þegar loftað var. Ekki kom fram markverður uppskerumunur á milli afbrigðanna, né heldur á milli þess að planta plöntunum beint í ræktunarbakkana án pottunar og láta plönturnar síðan vaxa upp á einum sprota og þess að potta plöntunum á hefðbundinn hátt og láta hverja plöntu síðan vaxa upp á tveimur sprotum. Veruleg aukning í söluhæfri uppskeru kom fram þegar fjöldi sprota var aukinn úr fimm upp í sex sprota á fermetra. |