Forræktun papriku í ræktunarbeðum, án pottunar 2001-2002. Forathugun

HöfundurÚtgefandiÚtgáfuárÚtgáfustaður
Garðar R. Árnason, Björn Gunnlaugsson, Sveinn AðalsteinssonGarðyrkjumiðstöðin Reykjum2003Reykir, Ölfusi
RitÁrgangurTölublaðBls.
Garðyrkjufréttir20034

0209.pdf

Árin 2001 og 2002 fóru fram tilraunir á Garðyrkjuskóla ríkisins með forræktun og útplöntun papriku (´Mandy´). Ræktunin fór fram í vikri bæði árin, í 11 lítra Bato-bökkum. Sáð var í steinull 31. janúar 2001 og 8. febrúar 2002. Þann 13. febrúar 2001 og 22. janúar 2002 var hluta plantnanna pottað í steinullarkubba (10x10x7 cm) og hluta þeirra plantað beint í ræktunarbakkana án pottunar. Plönturnar fóru út í ræktunarklefann þann 28. mars árið 2001 og 27. febrúar árið 2002. Plönturnar voru bundnar upp í V og hver planta ýmist tekin upp á einum sprota eða tveimur. Plöntur sem fengu hefðbundna forræktun með pottun voru látnar vaxa upp á tveimur sprotum, en þær sem var plantað beint í bakkana voru látnar vaxa upp á einum sprota. Plöntur án hefðbundinnar pottunar skiluðu ívið meiri heildar- og söluhæfri uppskeru. Uppskeruaukinn samfara plöntun beint í ræktunarbakkana án pottunar stafar af fleiri aldinum á fermetra, en þungi aldinanna var óháður því hvort plöntunum var pottað á hefðbundinn hátt eða ekki. Tölfræðilegur grunnur tilraunarinnar er veikur og því óráðlegt að draga mjög ákveðnar niðurstöður af tilrauninni.