Kirsuberjatómatar við raflýsingu
 |
| Höfundur | Útgefandi | Útgáfuár | Útgáfustaður |
| Garðar R. Árnason | Garðyrkjumiðstöðin Reykjum | 2006 | Reykir, Ölfusi |
 |  |  |  |
| Rit | Árgangur | Tölublað | Bls. |
| Garðyrkjufréttir | | 219 | 8 |
 |  |  |  |
 |  |  |  |

Árið 2005 fóru fram tilraunir á Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum með ræktun kirsuberjatómata undir raflýsingu. Tilraunirnar voru framkvæmdar vegna óska meðal garðyrkjubænda um rannsókn á kirsuberjatómötum með tilliti til heilsársræktunar. Yrkinu ´Suzanne´ var sáð 5. október 2004 og pottað í steinullarkubba 14. október og plantað út í ræktunarklefann 9. nóvember. Ræktunin fór fram í vikri (1-8 mm), sem hafður var í 12 lítra fötum. Í hverri fötu voru þrjár plöntur og ýmist tekinn upp einn eða tveir aukasprotar pr. fötu, eftir því hvort um 3,4 eða 4,2 toppa á fermetra var að ræða. Lýsing hófst strax að lokinni útplöntun, með 238 W/m2 (uppsett afl), þar af var 45% orkunnar í formi millilýsingar með 250 W háþrýstum natríumlömpum og 55% í formi hefðbundinnar lýsingar ofan við plönturnar. Lýst var í 18 klst. á sólarhring. Eftir útplöntun var haldið 22°C hita að degi og 18°C að nóttu, en 6. apríl var hitinn lækkaður í 21°C að degi og 15°C að nóttu til að stuðla að myndun tvöfaldra klasa, án þess þó að skila árangri. Á ræktunartímanum var haldið 700 ppm CO2 á meðan lýst var og gluggar lokaðir, en 400 ppm á öðrum tímum. Uppskera hófst 15. desember og henni lauk 17. ágúst, að loknum 35 upskeruvikum. Söluhæf uppskera varð 38,4 kg/m2 með 3,4 toppum á m2 og 40,7 kg/m2 með 4,2 toppum. Aldinin voru gæðamikil og flokkuðust vel.
|