|
|
Smáverkefnasjóður
Umsjónarmaður:
Árni Jósteinsson
Bændasamtökum Íslands
Bændahöllinni v/Hagatorg
Sími 563 0300
Bréfsími 562 3058
Um Smáverkefnasjóð landbúnaðarins
Smáverkefnasjóður landbúnaðarins var stofnaður í árslok 1990.
Starfsfé hans kemur úr Framleiðnisjóði landbúnaðarins. Stjórn sjóðsins er skipuð fulltrúum frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins (Jón G. Guðbjörnsson, Lindarhvoli), Bændasamtökum Íslands (Jónas Helgason, Æðey) og landbúnaðarráðuneyti (Jóhanna Pálmadóttir, Akri, sem jafnframt er formaður stjórnar).
Tilgangur sjóðsins er:
Að styðja við framtak og þær hugmyndir fólks í dreifbýli, sem leitt gætu til atvinnusköpunar t.d. á sviði handiðna eða minni framleiðslu- og/eða þjónustuverkefna.
Sjóðurinn veitir styrki en ekki lán. Hámarksframlag á verkefni er kr. 500.000. Upplýsingar um sjóðinn, ásamt umsóknareyðublöðum, fást hjá Bændasamtökum Íslands eða búnaðarsamböndunum og hér á Netinu. Afgreiðsla umsókna er fjórum sinnum á ári.
Hér er hægt að nálgast umsóknareyðublað til að sækja um styrk úr Smáverkefnasjóði landbúnaðarins:
Umsóknareyðublað um styrk úr Smáverkefnasjóði
Starfsreglur
Smáverkefnasjóður landbúnaðarins er stofnaður af Framleiðnisjóði landbúnaðarins og með samþykki sjóðsstjórnar í desember 1990. Vörsluaðili sjóðsins er Framleiðnisjóður landbúnaðarins.
Stjórn sjóðsins er skipuð fulltrúum frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins, Bændasamtökum Íslands og Landbúnaðarráðuneytinu.
Hlutverk Smáverkefnasjóðs er; hvatningar- og ráðgjafarstarf um umfangsminni nýsköpunarverkefni í dreifbýli, þar með talið veiting styrkja. Lagt er að jöfnu atvinnusköpun á lögbýlum og minni þéttbýlisstöðum. Verkefni á þéttbýli skulu hafa beina og afdráttarlausa skírskotun til hagsmuna og atvinnusköpunar í sveitum landsins.
Sérstök áhersla skal lögð á að efla handverk í víðtækum skilningi, ásamt öðrum framleiðslu- og/eða þjónustuverkefnum sem áhugaverð þykja og teljast líkleg til þess að skila tekjum samhliða búrekstri og/eða annarri atvinnu sem tengist landbúnaði.
Eftirfarandi skal ennfremur hafa til hliðsjónar þegar meta skal hvort umsókn fellur að markmiðum Smáverkefnasjóðs.
- Viðfangsefnin skulu vera sjálfstæð og kostnaðaráætlun að jafnaði ekki hærri en sem nemur kr.1.200.000 í útlögðum kostnaði. Eigið vinnuframlag myndar ekki stofn til styrkveitinga né heldur vsk.
- Hámarksframlag er kr. 500. þús. Að jafnaði skal framlag miðast við að vera 25% til 50% af kostnaði. Í sérstökum tilvikum getur framlag orðið hærra telji sjóðstjórn sérstök rök mæla með því.
- Verkefni sem lúta að rannsóknum og þróun viðfangsefna eða hugmynda, falla að öllu jöfnu ekki undir Smáverkefnasjóð, nema í þeim verkefnum sem sjóðurinn styrkir. Ennfremur ekki bein verkefni við hefðbundnar búgreinar, nema um sérstaka nýbreytni sé að ræða.
- Sjóðurinn skal hafa samráð við Framleiðnisjóð landbúnaðarins um það hvaða verkefnum/verksviðum skal vísa beint til Framleiðnisjóðs.
- Um verkefni vegna námskeiða og námsferða skal gera sérstakar reglur sem Framleiðnisjóður landbúnaðarins samþykkir.
- Verkefni sem áður hafa hlotið styrk eru styrkhæf síðar ef um augljóst framhald og viðbætur við verkefnið er að ræða.
- Umsóknum sem er synjað frá Framleiðnisjóði eða verkefnum sem hafa hlotið stuðning þaðan verður ekki sinnt hjá Smáverkefnasjóði, nema þeim sé vísað þangað frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
- Umsóknum um úthlutun úr sjóðnum skal skila á umsóknareyðublöðum sjóðsins. Þar skulu tilgreind á sem nákvæmastan hátt, fyrirætlanir og hugmyndir umsækjanda eða gerð rækileg grein fyrir verkefnum, sem þegar eru komin í framkvæmd. Allar upplýsingar fer sjóðsstjórn með sem trúnaðarmál.
- Sjóðstjórn getur áskilið sér rétt til sérstakrar athugunar á styrkhæfni einstakra verkefna með öflun frekari upplýsinga.
Stjórn sjóðsins hafi samráð við Bændasamtök Íslands og Framleiðnisjóð landbúnaðarins um að leggja sjóðnum til starfsmann og setja honum erindisbréf.
Fjármálaleg úrlausn samþykktra verkefna er hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Samþykkt af stjórn Smáverkefnasjóðs 7. apríl 2003
|
|
|