|
|
Fjármál og skrifstofa annast alla daglega fjármálaumsýslu og rekstrarstjórn skrifstofu, svo og starfsmannamál. Fjármál og skrifstofa sér um allt bókhald samtakanna, en hefur jafnframt með höndum umsjón með öllum fjárreiðum samtakanna og gegnir því hlutverki að ávöxtun og varsla fjármuna skili hámarks árangri. Fjármálasvið hefur með höndum greiðslur samkvæmt búvörusamningum í samræmi við fyrirmæli félagssviðs. Jafnframt annast fjármálasvið rekstur skrifstofu og alla skrifstofuþjónustu með það að markmiði að þjónustan stuðli að aukinni skilvirkni starfsmanna og markvissum vinnubrögðum til aukins árangurs. Jafnframt hefur fjármálasvið með höndum ráðningar og stuðlar að þjálfun starfsmanna, auk samninga við þá og launagreiðslur.
|
|
|