|
|
Ráðgjafarsvið BÍ
Meginhlutverk ráðgjafarsviðs Bændasamtakanna er; - að bæta samkeppnishæfni landbúnaðarins og hafa frumkvæði í að efla fagþekkingu og færni bænda á sem flestum sviðum búskapar.
Til að sinna því hlutverki verður boðið upp á fjölbreytta fagþjónustu eftir því sem þörf er á. Í því sambandi er lögð megináherslu á að efla og treysta samstarf og samvinnu við búnaðarsamböndin / leiðbeiningastöðvar.
Til að ná markmiðunum mun ráðgjafarsvið byggja á þeirri sérþekkingu sem er fyrir hendi innan BÍ og efla hana. Jafnframt verður leitað til utanaðkomandi samstarfsaðila eftir því sem það er hagkvæmt og í þeim tilgangi að sinna sem best þörfum bænda.
Kappkostað verður að haga ráðgjafarþjónustunni í takt við síbreytilegar þarfir og nýja möguleika í landbúnaði.
Ráðagjafarsvið mun hafa frumkvæði í að tengjast aðgerðum opinberra aðila m.a. í umhverfis- og gæðamálum, og jafnframt leita eftir sóknarfærum og samstarfi við aðra aðila um sérstök verkefni sem miða að auknum árangri í búrekstri og landbúnaðarframleiðslu.
|
|
|