Landbunadur.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst
 
 
Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
 
 
Bændasamtökin
Félagssvið
Launakjör
Félagskerfi
Sjúkrasjóður BÍ
Orlofssjóður BÍ
Orðskýringar
Mánaðaryfirlit
Verðlagning búvara
Verðl.grundv./Framleiðsluk.
Mat á verðskrám
Hagtölur
Verð á greiðslumarki
Greiðslumark
Beingreiðslur
Úrelding gróðurhúsa
Samningar
Eyðublöð
Álags- og jöfnunargr.
Lög, reglug. og augl.
Ráðgjafarsvið
Útgáfa og kynning
Tölvudeild
 
Landbúnaðarnetföng
 
Innskráning
 
Vefpóstur BÍ
 
Vefpóstur BSB
 

Orlofssjóður BÍ


Úthlutunarreglur Orlofssjóðs bænda


Orlofssjóður BÍ styrkir bændur til orlofs innan lands sem utan. Umsóknum skal skila til sjóðsstjórnar fyrir 15. mars ár hvert á skrifstofu Bændasamtaka Íslands. Tilkynning um úthlutun berst umsækjendum fyrir lok apríl ár hvert.

Styrkupphæð getur hæst orðið kr. 38.500 miðað við 7 sólarhringa orlofsdvöl eða kr. 5.500 á sólarhring. Styrkþegi er ekki bundinn af því að nýta styrkinn til samfelldrar dvalar. Styrkur er einnig veittur til gistingar á Radisson SAS Hótel Sögu eða Park Inn Hótel Íslandi í Reykjavík.

Orlofsstyrkur eru ekki veittur vegna dvalar í orlofsíbúð Bændasamtaka Íslands í Reykjavík, sumarhúsum Bændasamtaka Íslands á Hólum í Hjaltadal.

Greiðsla orlofsstyrksins fer þannig fram að styrkþegar senda afrit af reikningum fyrir gistingu, þar sem fram koma dagsetningar, fjöldi nátta og upphæð gistikostnaðar. Sé um orlofsdvöl erlendis að ræða skal jafnframt leggja fram afrit af flugmiðum og/eða kvittun fyrir greiðslu flugmiða, þar sem fram kemur nafn styrkþega og fjölskyldumeðlima hans. Áríðandi er að með fylgi upplýsingar um bankareikning (útibú – höfuðbók – reikningsnúmer) og kennitölu styrkþega.

Árlega eru greiddir að hámarki 70 styrkir úr orlofssjóði. Litið er á styrkveitingu úr orlofssjóði sem stuðning við styrkþega og fjölskyldu hans til orlofsdvalar.
A.m.k. 4 ár skulu líða áður en styrkþegi (eða maki hans) kemur til greina að nýju við úthlutun.

Við úthlutun er fyrst og fremst tekið mið af starfsaldri og fyrri úthlutunum úr sjóðnum. Úthlutun orlofsdvalar í sumarhúsum BÍ á Hólum í Hjaltadal jafngildir úthlutun orlofsstyrks.

Styrkþegar eru eindregið hvattir til þess að nýta sér þjónustu ferðaþjónustubænda vítt og breitt um landið.
Mars 2007


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Athyglisverðir tenglar

dkBúbót handbók

Eyðublöð

Samningar

Forrit fyrir bændur

Greiðslumark

Lög og reglugerðir

Tölur og gjaldskrár

Útgefið efni

Þéttbýlið og sveitin