|
|
Félagssvið er vettvangur víðtækra hagsmuna og sjónarmiða innan landbúnaðarins og hefur það hlutverk að standa vörð um rekstrarskilyrði og ímynd landbúnaðarins. Félagssvið annast samningagerð við opinbera aðila vegna landbúnaðar og framkvæmd á þeim, eftir því sem um semst milli aðila. Jafnframt starfrækir félagssvið hagdeild sem annast hvers konar upplýsingaöflun um starfsemi og hag landbúnaðar í þeim tilgangi að styðja hagsmunabaráttu bænda.
Félagssvið mun leita markvisst til annarra eininga í félagsstarfsemi bænda, s.s. búnaðarsambanda og búgreinasambanda um frekari þróun starfseminnar með það að markmiði að samstarf þessara aðila verði sem skilvirkast og þjóni sem best hagsmunum bænda á hverjum tíma. Stefnt verður markvisst að því að ná til nýrra aðila í landbúnaði, rækta samband við einstaka bændur og búgreinar og skerpa þannig stöðu BÍ sem samnefnara landbúnaðarins.
Innan félagssviðs verður lögð áhersla á virka þátttöku í opinberri umræðu um landbúnað þar sem haft verður frumkvæði að jákvæðri kynningu og umfjöllun á málefnum landbúnaðarins. Félagssvið mun jafnframt vera í tengslum við ýmsar stofnanir sem tengjast landbúnaði og leita eftir samvinnu við þær - landbúnaðinum til stuðnings.
|
|
|