Fóðrun hrossa
Hestar í haga
Fullorðin hross
Meðalþungi fullvaxinna íslenksra hrossa er um 370 kg og daglegar viðhaldsþarfir eru nálægt 3,1 FEH og 250 g prótín. Við mat á fóðurþörfum skal þó ávalt taka tillit til holdafars og ásigkomulags.
Fóðurþörfum fullorðinna hrossa til viðhalds má fullnægja að mestu með góðu heyi. Tryggja þarf þó steinefna- og vítamínþarfir.
Orkuþarfir til viðhalds
Orkuþörf til viðhalds er sú orka sem þarf til eðlilegra starfsemi án tillits til brúkunar. Orkuþörf fer eftir stærð og þunga grips og er reiknað samkvæmt evrópska fóðurmatskerfinu á eftirfarandi hátt
FEH til viðhalds = 0,037*Þ0,75 Þ = þungi hests í kg
Prótínþarfir til viðhalds
Prótínþörf fer einnig eftir stærð og þunga grips og er reiknað á eftirfarandi hátt
g mph á dag = 3g mph * Þ0,75 mph = meltanlegt hráptótín
Daglegar prótínþarfir hests til viðhalds eru nálægt 70 g meltanlegs hráprótíns fyrir hver 100 kg í þunga
Orku- og prótínþarfir fullorðinna hesta til viðhalds |
Þungi, kg | FE | FEH | g mph/dag |
250 | 2,6 | 2,3 | 189 |
300 | 2,9 | 2,7 | 216 |
350 | 3,3 | 3,0 | 242 |
400 | 3,6 | 3,3 | 268 |
*mph = meltanlegt hráprótín |
Steinefna – og vítamínþarfir hrossa
Steinefnaþarfir hrossa eru áætlaðar út frá orkuþörf þeirra, þá er bæði tekið tillit orkuþörf til viðhalds og orkuþörf til brúkunar
| Steinefna- vítamínþarfir hrossa |
| Kalsíum (Ca) | 6 -9 g / FEH |
| Fosfór (P) | 5 7 g / FEH |
| Natríum (Na) | 1,5 -2 g / FEH |
| Magnesíum (Mg) | 1,5 – 2g / FEH |
| Selen (Se) | 0,05 – 1 mg / FEH |
| A-vítamín | 5.000 a.e. / FEH |
| D-vítamín | 500 a.e. / FEH |
| E-vítamín | 50 mg / FEH |
| Hærri gildin eiga einnig við hross í vexti, mikilli brúkun, á meðgöngu og mjólkurskeiði |
Brúkun
Orkuþarfir aukast við brúkun í samræmi við hraða, þyngd byrðar, þjálfun og landi sem riðið er um. Má bæta eftirfarandi gildum við viðhaldsfóður brúkunarhrossa eftir því sem við á.
| Orkuþarfir vegna brúkunar |
| Létt brúkun | 25 % aukning eða 0,5 FEH/klst |
| Talsverð brúkun | 50 % aukning eða 1,0 FEH/klst |
| Mikil brúkun | 75 % aukning eða 1,5 FEH/klst |
| Mjög erfið brúkun | 100 % aukning - ströng þjálfun eða keppni |
Unghross
Orkuþörf hrossa í vexti er reiknuð er út frá þunga og stærð að viðbættum 1,5 FEH . Prótín og steinefna- og vítamín þörf hrossa í vexti er einnig mun meiri en hjá fullorðnum hrossum sérstaklega hjá yngstu tryppunum eins og sést í eftirfarandi töflu (ath steinefna- og vítamínþörf hrossa í vexti miðast við hærri gildin í töflunni hér að ofan).
| Orku- og prótínþarfir unghrossa til viðhalds og vaxtar |
| Aldur | Þungi, kg | FEH / dag | g mph / FEH |
| Tryppi á 1. vetri | 130 - 220 | 3,0 – 3,5 | 140 |
| Tryppi á 2. vetri | 210 – 320 | 3,1 – 4,0 | 130 |
| Tryppi á 3.vetri | 250 – 350 | 3,0 – 4,0 | 120 |
| Tryppi á 4.vetri | 280 - 380 | 3,0 – 4,2 | 100 |
| *Tryppi í tamningu |
Fyrstu 2-21/2 árin á sér stað veruleg uppbygging beina, og er því áríðandi að steinefna- og vítamínþörfinni sé fullnægt
Fylfullar hryssur og fylsugur.
Fyrstu 7 mánuði meðgöngu eykst fóðurþörf lítið en úr því er ráðlegt að fara að auka við viðhaldsfóðrið. Fyrst um 0,3 FEH á dag en eftir áttunda mánuð meðgöngu um 1,0-1,5 FEH á dag. Prótínþörfin eykst einnig og er þarf að bæta við um 100 g mph á dag við viðhaldsprótín.
Hryssa sem folald gengur undir þarf viðbótarfóður vegna mjólkurframleiðslu, um 1 FEH fyrir hver 4 kg sem hún mjólkar og 48 g mph á hvert kg mjólkur sem hún framleiðir. Hryssa í hæstri nyt þarf því nálægt tvöföldu viðhaldsfóðri en venjuleg nyt kalla á 3-5 FEH á dag auk viðhaldsorku og 576-960 g mph á dag auk viðhaldsprótíns
Áætluð mjólkurnyt hjá íslenskum hryssum.
Mánuðir eftir köstun | Dagleg nyt, kg |
0 – 1 | 10 – 11 |
1 – 2 | 12 -13 |
2 – 3 | 13 – 13,5 |
3 – 4 | 10 – 10,5 |
4 – 5 | 9 - 10 |
Flestar hryssur kasta á vorin og sumrin og fullnægja fóðurþörfum með beit ef nægur gróður er kominn. Hryssum, sem kasta að vetrinum, þarf að sjá fyrir auknum fóðurþörfum vegna mjólkur.
Kjarnfóður
Ýmsar kjarnfóðurtegundir - fóðursamsetning og efnainnihald
Verðlisti yfir kjarnfóður
|